UM EIM

Nýsköpun og þróun á Norðurlandi

Markmið og stefna Eims


Eimur er samstarfsverkefni umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins, Landsvirkjunar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Norðurorku og Orkuveitu Húsavíkur.

Markmið Eims er að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi.

Í þessu felst að:

  • Stuðla að bættri nýtingu orkuauðlinda, hvort sem þær eru á formi varma eða raforku.
  • Bæta nýtingu hliðarstrauma, frá iðnaði, landbúnaði, eða innviðum samfélagsins, í anda hringrásarhagkerfisins 
  • Greiða leið orkuskipta með samstarfi við sveitarfélög, atvinnulíf og aðra hagsmunaaðila svæðisins.
  • Stuðla að sjálfbærni samfélagsins og jákvæðu samspili umhverfis, efnahags og samfélags
  • Efla atvinnulíf og verðmætasköpun gegnum hagnýtar rannsóknir og stuðning við frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun innan starfandi fyrirtækja
  • Miðla tækifærum á þessum sviðum og kynna þau fyrir atvinnulífi, fjárfestum, opinberum aðilum, skólum og rannsóknaraðilum.

Eimur leiðir saman fólk og fyrirtæki til samstarfs um tilraunir, rannsóknir og þróunarverkefni á sviði orku-, auðlinda-, og loftslagsmála, meðal annars gegnum alþjóðlegt samstarf.

Eimur er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Norðurorku, Orkuveitu Húsavíkur, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins


Markmið Eims er að bæta nýtingu auðlinda á Norðurlandi eystra með verðmætasköpun, sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi.


Í þessu felst að:

  • Stuðla að bættri nýtingu orkuauðlinda, hvort sem þær eru á formi varma eða raforku.
  • Bæta nýtingu hliðarstrauma, frá iðnaði, landbúnaði, eða innviðum samfélagsins, í anda hringrásarhagkerfisins 
  • Greiða leið orkuskipta með samstarfi við sveitarfélög, atvinnulíf og aðra hagsmunaaðila svæðisins.
  • Styðja við hagnýtar rannsóknir á bættri nýtingu auðlinda
  • Stuðla að sjálfbærni samfélagsins og samspili umhverfis, efnahags og samfélags
  • Efla atvinnulíf og verðmætasköpun svæðisins með stuðningi við frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun innan starfandi fyrirtækja
  • Miðla tækifærum á þessum sviðum og kynna þau fyrir atvinnulífi, fjárfestum, opinberum aðilum, skólum og rannsóknaraðilum.


Eimur miðar að því að leiða saman fólk og fyrirtæki til samstarfs um tilraunir, rannsóknir og þróunarverkefni á sviði orku-, auðlinda-, og loftslagsmála, meðal annars með öflun alþjóðlegs fjármagns.

Starfsmenn


Stjórn


Stjórn:
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Formaður stjórnar) - Samtök Sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)
Haraldur Hallgrímsson - Landsvirkjun

Sigríður Svana Helgadóttir - Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Benedikt Þór Jakobsson - Orkuveita Húsavíkur

Katrín M. Guðjónsdóttir - Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)

Eyþór Björnsson - Norðurorka



Verkefnastjórn

Dóra Björk Þrándardóttir - Landsvirkjun

Elva Gunnlaugsdóttir -Samtök Sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)

Magnús Barðdal - Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)





Share by: