Vinnustofur RECET um orkuskipti

Vinnustofur RECET um orkuskipti

Sveitarfélög innan SSNE hafa öll fengið boð um þátttöku við gerð aðgerðaráætlunar í orkuskiptum.


Sem liður í þeirri vinnu er umhverfis- og skipulagsstarfsfólki sveitarfélaganna, kjörnum fulltrúum, sveitarstjórum og starfsfólki orku- og veitufyrirtækja boðið að taka þátt í lokuðum vinnustofum RECET um orkuskipti sem fara fram í október og nóvember.


RECET verkefnið snýst um að efla getu sveitarfélaganna til að takast á við orkuskipti í dreifðum byggðum. Markmiðið er að hvert sveitarfélag hafi í höndunum raunhæfa aðgerðaáætlun til að hraða þeirri þróun. Upp úr þeirri vinnu verður mörkuð aðgerðamiðuð heildarstefna fyrir Norðurland eystra.


Vinnustofur RECET um orkuskipti verða eftirfarandi daga:

  • Norðurþing, Þingeyjarsveit og Langanesbyggð – 28.okt (mánudagur),  kl. 10:00-14:00,  Skúlagarði
  • Akureyri – 30. október (miðvikudagur), kl. 10:00-14:00, Símey
  • Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð – 5. nóvember (miðvikudagur),  kl. 10:00-14:00, Menningarhúsið Tjarnarborg, Ólafsfirði
  • Grýtubakkahreppur og Svalbarðsströnd – 14. nóvember (fimmtudagur), kl. 10:00-14:00, Skrifstofa Grýtubakkahrepps
  • Eyjarfjarðarsveit, Hörgársveit – 19. nóvember (þriðjudagur), kl. 10:00-14:00, Símey


Í maí 2025 er fyrirhugað málþing þar sem rædd verður niðurstaða þessarar vinnu í samhengi við landsáætlanir og næstu skref. 



Þeir sem ekki hafa fengið fundarboð geta skráð sig á vinnustofur hér fyrir neðan.


Nánari upplýsingar veitir Skúli Gunnar Árnason á netfangið skuli@eimur.is

Skráning

Vinnustofa RECET um orkuskipti

Deildu viðburðinum

Share by: