Gerum okkar mat úr jarðhitanum

Gerum okkar mat úr jarðhitanum


Hugmyndasamkeppni um matvælaframleiðslu með jarðvarma á Norðausturlandi.

Eimur, í samstarfi við Íslensk verðbréf, Matarauð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands, stóð fyrir hugmyndsamkeppni um nýtingu jarðhita til matvælaframleiðslu. Tilgangur samkeppninnar var sá að stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda á Norðurlandi eystra. Hugmyndirnar máttu vera á hvaða stigi sem er og fela í sér allt frá framleiðslu á hráefnum til fullunninnar matvöru.


Fjórar hugmyndir voru valdar til úrslita og voru kynntar á viðburði í Hofi fimmtudaginn 14. júní 2019.


Hugmyndin sem bar sigur út býtum var: "Rearing Insects on Geothermal Energy- TULCIS – The Insect Farm to Feed the Future" sem Torsten Ullrich og Christin Irma Schröder sendur inn. Þau hlutu tvær milljónir króna í verðlaun. Í 2. sæti var hugmyndin: "Ræktun á heitsjávarrækju á Hjalteyri við Eyjafjörð" sem Magnús Þ. Bjarnason og Þorgerður Þorleifsdóttir sendu inn. Einnig komust í úrslit Jóhanna María Sigmundsdóttir og Sigmundur Hagalín Sigmundsson með hugmyndina: "Fullnýting á íslenskri yl- og útirækt með aðstoð jarðvarma" og Kristín S. Gunnarsdóttir með "Nýting náttúruafurða í Öxarfirði".


Sigurhugmyndirnar

1. sæti- "Rearing Insects on Geothermal Energy- TULCIS – The Insect Farm to Feed the Future"- Torsten Ullrich og Christin Irma Schröder

Sjá veggspjald


2. sæti- "Ræktun á heitsjávarrækju á Hjalteyri við Eyjafjörð"- Magnús Þ. Bjarnason og Þorgerður Þorleifsdóttir

Sjá veggspjald


3. sæti - "Fullnýting á íslenskri yl- og útirækt með aðstoð jarðvarma" - Jóhanna María Sigmundsdóttir og Sigmundur Hagalín Sigmundsson

Sjá veggspjald


4. sæti - "Nýting náttúruafurða í Öxarfirði" - Kristín S. Gunnarsdóttir

Sjá veggspjald



Aðrar hugmyndir sem sendar voru í keppnina

"Hraunbollur - Lava Balls" - Brigitte Bjarnason

Sjá veggspjald


"Þörungarækt" - Aron Heiðar Steinsson

Sjá veggspjald


"Niðursuða, gerilsneyðing og leifturhitun mjólkurafurða" - Aron Heiðar Steinsson

Sjá veggspjald


"Tómatarækt til þurrkunar" - Aron Heiðar Steinsson

Sjá veggspjald


"Geothermal energy fueled insect rearing : sustainable protein" - Fionn Larkin

Sjá veggspjald


"Svartlaukur" - Lísa Hlín Óskarsdóttir

Sjá veggspjald


"Jarðorkueldavélar með sandi, leir og hveravatni" - Ólafur Ingi Reynisson

Sjá veggspjald


"Gufuheimar" - Þórður Örn Kristjánsson

Sjá veggspjald


"Ræktun humla til bjórgerðar" - Börkur Emilsson 

Sjá veggspjald


"Jarðhitabakarí og súpu eldhús" - Friðrik Kristján Jakobsson

Sjá veggspjald


"Champignon Farm" - Michal Janusz Popiel

Sjá veggspjald


"Hið Íslenska Sjávarsoð" - Búi Vilhjálmur og Kristján Guðmundur

Sjá veggspjald


 "Sjálfbær - Skóli lífsins" - Árni Bergþór Bjarnason

Sjá veggspjald


"Soðgerð" - Ólöf Kolbrún Sigurðardóttir

Sjá veggspjald


"Nýting jarðhita við framleiðslu á bragðefnum fyrir mjólkurvörur"- Ragnar Þór Birkisson og Birkir Þór Jónasson

Sjá veggspjald


"Matur er manns gaman" - Ida Marguerite Semey

Sjá veggspjald



Aðdragandi

Eimur, í samstarfi við Íslensk verðbréf, Matarauð Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands kallaði eftir hugmyndum sem stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda á Norðurlandi eystra. Hugmyndir máttu vera á hvaða stigi sem er og fela í sér allt frá framleiðslu á hráefnum til fullunninnar matvöru.


Jarðhitinn á Norðausturlandi er frábært tækifæri til þess að skapa verðmæti úr sjálfbærri orku. Óskað var eftir tillögum um hvernig nýta megi hitann í matvælaframleiðslu. Frumvinnsla, fullvinnsla, hliðarafurðir, hráefni, nýjungar, eitthvað spes, bara hvað sem er. "Við viljum heyra þína hugmynd!"


Þáttaka var öllum opin og hugmyndin mátti vera á hvaða stigi sem er. Sérstök áhersla var lögð á sjálfbærni og samvinnu ólíkra aðila.


Skila þurfti inn veggspjaldi, stærð A1, þar sem fram koma helstu atriði hugmyndarinnar. Eins var æskilegt að tillögunni fylgdi greinargerð með nánari umfjöllun. Tillögum var skilað með tölvupósti á 
tillogur@eimur.is.


Frestur til að skila inn hugmyndum rann út 15. maí.



Verðlaun

1. verðlaun eru kr. 2.000.000.

2. verðlaun eru kr. 500.000


Hægt var að leita til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Akureyri eftir ráðgjöf um útfærslu og uppsetningu á tillögum í samkeppnina. Nánari upplýsingar gaf Anna Guðný í síma 522 9431 eða 
annagudny@nmi.is.



Dómnefnd

Dómnefnd skipuðu Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, Sigríður Ingvarsdóttir, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Jón Steindór Árnason, Íslenskum verðbréfum, Brynja Laxdal, Matarauði Íslands og Sæmundur Elíasson, Matís.

Eftir Snæbjörn Sigurðsson 19. júní 2018
Alls bárust 20 hugmyndir í matvælasamkeppni Eims þar sem leitað var nýrra leiða til að nýta jarðhita við matvælaframleiðslu. Nú er hægt að skoða allar hugmyndirnar sem bárust á heimasíðu Eims.
Eftir Snæbjörn Sigurðsson 14. júní 2018
Úrslit úr matvælasamkeppninni: "Gerum okkur mat úr jarðhitanum" voru kynnt í Hofi í dag. Að samkeppninni stóðu Eimur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Matarauður Íslands og Íslensk verðbréf. Alls bárust 20 tillögur í samkeppnina um leiðir til að nýta jarðhita við framleiðslu á matvælum og næringarefnum.
Eftir Snæbjörn Sigurðsson 16. maí 2018
Alls bárust 20 hugmyndir í hugmyndasamkeppnina "Gerum okkur mat úr jarðhitanum" en skilafresturinn rann út á miðnætti í gær. Úrslitin verða tilkynnt á viðburði í Hofi um miðjan júní.
Skoða fleiri tengdar fréttir
Share by: