RECET

RECET


RECET miðar að því að efla getu sveitarfélaganna og atvinnulífsins til að takast á við orkuskipti og smíða orkuskiptaáætlanir fyrir svæðin.

Heimasíða verkefnisins

Verkefnið Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET) hefur hlotið styrk sem nemur um 1,5 milljónum evra (225 M ISK) úr LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins sem leggur áherslu á umhverfis- og loftslagsmál.


„RECET verkefnið sem hefst nú í október 2023 mun efla getu sveitarfélaga á fimm svæðum í Evrópu til að takast á við orkuskipti og smíða orkuskiptaáætlanir í sátt við hagsmunaaðila og samstarfi við atvinnulíf.“, segir Dimitris Sofianopoulos, verkefnastjóri hjá 
CINEA, Framkvæmdastofnun Evrópu um loftslags-, innviða- og umhverfismál, og er hann spenntur að fylgjast með framgangi verkefnising.


RECET er samstarfsverkefni fimm landa og tuga sveitarfélaga um alla Evrópu, með Ísland í fararbroddi. 


Sveitarfélög í dreifðum byggðum munu gegna lykilhlutverki í orkuskiptum og innleiðingu aðgerða sem miða að markmiði Evrópusambandsins um kolefnishlutleysi 2050 og lögfest markmið Íslands um kolefnishlutleysi 2040. Umtalsverð uppbygging innviða til orkuöflunar, flutnings og dreifingar þarf að eiga sér stað sem krefst aðkomu sveitarfélaga meðal annars í gegnum skipulagsgerð og leyfisveitingar.


RECET miðar að því að efla getu sveitarfélaganna og atvinnulífsins til að takast á við orkuskipti og smíða orkuskiptaáætlanir fyrir svæðin. Stuðst verður við reynslu og aðferðir Energiakademiet frá eyjunni Samsø í Danmörku við mótun og þróun aðgerða til orkuskipta á hverju landsvæði fyrir sig. Energiakademiet hefur áratuga reynslu af því að þróa og innleiða svæðisbundnar orkuskiptaáætlanir.


Íslensk Nýorka og Eimur leiða verkefnið hér á landi en Vestfjarðastofa og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra eru einnig þátttakendur. Utan Íslands koma einnig að RECET: Sveitarfélagið Postojna í Slóveníu, Blekinge sýsla í Suðaustur-Svíþjóð og sveitarfélög á eyjunni Menorca á Spáni.


Að auki hafa fleiri lýst yfir stuðningi við verkefnið, og þar á meðal er Samband íslenskra sveitarfélaga. Gyða Einarsdóttir þáverandi verkefnastjóri grænna og snjallra verkefna hjá Sambandinu segir að: „Þátttaka sveitarfélaga er lykilatriði í því að Ísland nái loftslagsmarkmiðum sínum. RECET verkefnið er gríðarlega spennandi verkefni, sem mun styðja við sveitarfélög á Íslandi og hjálpa þeim til þess að setja markmið og gera raunhæfar áætlanir um það hvernig við getum orðið jarðefnaeldsneytislaus 2040.“


Sú þekking sem mun skapast í RECET verkefninu og niðurstöður þessu verða aðgengileg öllum sveitarfélögum jafnt á Íslandi sem og annars staðar í Evrópu.


Verkefnið hófst 1. október 2023 og stendur yfir í þrjú ár.

  • Málstofa : Orkuskipti og sveitarfélög

    Íslensk Nýorka, Eimur, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Vestfjarðastofa stóðu fyrir sameiginlegum viðburði þann 29. ágúst 2023. Viðburðurinn var í beinu streymi frá Hótel KEA á Akureyri og er upptakan hér gerð aðgengileg. Málstofan bar yfirskriftina: Orkuskipti og sveitarfélög. Viðburðurinn markar upphafið að þriggja ára verkefni sem miðar að því að efla getu sveitarfélaga og samfélaga í dreifðum byggðum Evrópu, til að takast á við orkuskipti.



    Dagskrá:


    Hilmar Gunnlaugsson, Sókn Lögmannsstofa - Tekjumöguleikar sveitarfélaga af orkumannvirkjum


    Alexis Chatzimpiros, Samsø Energiakademi - Reynsla af uppbyggingu vindorku og öðrum orkugjöfum á Samsö


    Anna Margrét Kornelíusdóttir, Íslensk Nýorka - Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET verkefnið) - Styrkt af LIFE-áætlun ESB


    Fundarstjóri var Ottó Elíasson, rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi

  • Málstofa : Orkuskipti og sveitarfélög - Hvað næst?

    Eimur, SSNE og Íslensk Nýorka héldu málstofu í Hofi og í streymi 21. febrúar 2024. Fjallað var um stöðu mála í orkuskiptum á Norðurlandi, olíunotkun svæðisins verður kynnt ásamt sérstakri umfjöllun um orkuskipti í þungaflutningum og við hafnir.



    Horfðu á alla málstofuna hér: 



    SSNE – Sigurborg Ósk Haraldsdóttir


    Ávarp/Opnun málstofu



    Eimur – Ottó Elíasson


    RECET verkefnið




    Umhverfisstofnun – Birgir U. Ásgeirsson


    Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi



    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið – Magnús Örn Agnesar Sigurðsson


    Uppfærsla aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum



    Orkustofnun – Sigurður Friðleifsson


    Staða og áskoranir í Orkuskiptum – Ísland og Norðurland Eystra



    Eimur – Skúli Gunnar Árnason


    Olíunotkun á Norðurlandi Eystra: Í hvað fer olían?



    Íslensk Nýorka – Anna Margrét Kornelíusardóttir


    Orkuskipti í þungaflutningum



    Blámi – Þorsteinn Másson


    Orkuskipti við hafnir



    Heimasíða verkefnisins: www.recetproject.eu


    Nánari upplýsingar um verkefnið veita:



    Íslensk Nýorka, Anna Margrét Kornelíusdóttir, amk@newenergy.is


    Eimur, Ottó Elíasson, ottoel@eimur.is


    Vestfjarðastofa, Hjörleifur Finnsson, hjorleifur@vestfirdir.is


    SSNE, Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, sigurborg@ssne.is

Tengiliður verkefnis

Skúli Gunnar Árnason

skuli@eimur.is

Nánari upplýsingar veita einnig:

18. desember 2024
RECET verkefnið heldur áfram að gefa af sér ávexti!
21. nóvember 2024
Eimur og SSNE hafa nú lokið röð vinnustofa í tengslum við RECET-verkefnið sem snýst um orkuskipti í dreifðum byggðum. Sveitarfélög innan SSNE fengu öll boð um þátttöku í þessari vinnu, sem hefur það markmið að efla getu þeirra til að takast á við orkuskipti og móta raunhæfar aðgerðaáætlanir. Þessar áætlanir munu síðan mynda grunn að aðgerðamiðaðri heildarstefnu fyrir Norðurland eystra.
Karl og kona sitja við borð með heyrnartól á
24. júní 2024
Eimur og Efla leiða saman hesta sína í úttekt á olíunotkun sveitarfélaga á Íslandi. Úttektin er hluti af RECET verkefninu sem snýst um að efla getu sveitarfélaganna til að takast á við orkuskipti, lögð verður áhersla á sveitarfélögin á Norðurlandi eystra og Vestfjörðum sem eru einmitt viðfang RECET. Til verksins var ráðinn í sumarstarf til Eflu Sindri Dagur Sindrason sem er með BSc í vélaverkfræði, en Ágústa Steinunn Loftsdóttir, sem situr einmitt í ráðgjafaráði RECET verkefnisins sinnir leiðbeiningu innan Eflu, auk starfsfólks Eims. Markmiðið er að birta niðurstöðurnar á skýrsluformi með haustinu, en það getur þá nýst sem byrjunarreitur fyrir áætlanagerð sveitarfélaga sem hafa takmarkaða hugmynd um olíunotkun innan sinna marka. Einn þáttur í RECET verkefninu er svo að þróa stafrænt mælaborð þar sem þessar upplýsingar verða gerðar aðgengilegar á vefnum með myndrænum hætti. Í dag eru þessar upplýsingar aðeins aðgengilegar fyrir landið allt, vegnum gagnagáttir Orkustofnunar, en hér á að brjóta notkunina betur niður landfræðilega. Við hlökkum til samstarfsins!
Skoða fleiri tengdar fréttir
Share by: