Blog Layout

25. júní 2021

Vefstofa - GEOforFOOD

Þann 29.júní næstkomandi standa GEOTHERMICA og Orkídea fyrir vefstofu undir yfirskriftinni: GEOforFOOD. Vefstofan hefst klukkna 13:30 á íslenskum tíma og er megin viðfangsefni hennar nýting jarðvarma til framleiðslu og áframvinnslu matvæla. Vefstofan fer fram á ensku.

GEOTHERMICA  er alþjóðlegt rannsóknarnet 16 landa og 20 rannsóknaraðila þ.m.t. Íslands.  GEORG , íslenski jarðhitaklasinn, stýrir skrifstofu GEOTHERMICA. Orkídea og GEOTHERMICA munu halda alþjóðlega vefstofu (webinar) 29. júní nk. kl. 13.30-15 að ísl. tíma. Fjallað verður um möguleika jarðhitans til að takast á við framtíðaráskorun mannkyns, sem er að brauðfæða sífellt fleiri íbúa jarðarinnar.

Við hvetjum alla áhugasama til að skrá sig sem fyrst!

Skráning á vefstofna fer fram hér.

Nánari upplýsingar um vefstofuna má finna hér.

 


Deila frétt

Fréttabréf RECET verkefnisins er komið úr
11. febrúar 2025
RECET verkefnið hefur gefið út sitt fyrsta árlega fréttabréf, þar sem fjallað er um helstu framfarir í orkuskiptum sveitarfélaga í dreifðum byggðum í Evrópu. Í þessu tölublaði er fjallað um: 🔹 Nýjustu innsýn frá vinnustofum og viðburðum 🔹 Stefnumótun og fjármögnunartækifæri 🔹 Góðar lausnir fyrir sveitarfélög í dreifðum byggðum 🔗 Lesið fréttabréfið á netinu: https://www.recetproject.eu/recetnewsletter 📥 Hlaðið niður PDF útgáfu:
Karen Mist og Ragnhildur hjá Eimi voru í för með fulltrúum frá Landsvirkjun og Bláma.
30. janúar 2025
Verkefnið í Færeyjum sýnir vel hvernig mismunandi geirar matvælaiðnaðar geta unnið saman í úrgangsmálum og verðmætasköpun. Eimur er nú þegar með áþekk verkefni innan lífgasvinnslu til skoðunar á Norðurlandi og opnaði þessi vettvangsferð augu okkar enn frekar fyrir ávinningi slíkrar starfsemi.
30. desember 2024
Viðburðaríkt ár hjá Eimi!
Share by: