Íslensk nýorka, Eimur, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Vestfjarðastofa stóðu fyrir sameiginlegum viðburði, þriðjudaginn 29. ágúst sl. Viðburðurinn var í beinu streymi frá Hótel KEA á Akureyri og bar yfirskriftina: Orkuskipti og sveitarfélög. Viðburðurinn markaði upphafið að þriggja ára verkefni sem miðar að því að efla getu sveitarfélaga og samfélaga í dreifðum byggðum Evrópu, til að takast á við orkuskipti.
Dagskrá:
📢 Hilmar Gunnlaugsson
, Sókn Lögmannsstofa (min 03:00)
- Tekjumöguleikar sveitarfélaga af orkumannvirkjum
📢 Alexis Chatzimpiros
, Samsø Energiakademi
(min 34:10)
- Reynsla af uppbyggingu vindorku og öðrum orkugjöfum á Samsö
📢 Anna Margret Korneliusdottir
, Íslensk Nýorka (min 1:01:10)
- Rural Europe for the Clean Energy Transition (RECET verkefnið) - Styrkt af LIFE-áætlun ESB
Fundarstjóri var Ottó Elíasson
, rannsókna- og þróunarstjóri hjá Eimi